Lífið... sem er bara æfingar og vinna

Vikan sem er í gangi. 

Eins og ég er búinn að fjalla um hér áður þá er ég að bömpa upp æfingunum hjá mér ansi mikið. Ég var upprunalega búinn að still vikunni upp með 2 frídögum en svo þarf ég að fara austur í sveit um helgina að sjá um búið fyrir mömmu og Egil, þannig ég þurfti aðeins að hræra í þessu. Dagurinn í dag var fimmti dagurinn í röð sem ég tók æfingu og það var VO2max æfing sem var skuggalega erfið. Ég átti að halda 267-304 W í 4x4 mínútur en náði ekki að negla æfinguna eins og ég átti að gera.

Yfirlit yfir æfinguna úr Trainingpeaks þar sem sést (bleika línan) hvernig ég var að fjara út hægt og rólega.

Niðurstaðan úr þessari æfingu er að ég er sennilega að fara eitthvað niður í formi og ekki alveg að halda í við þetta. Það er freistandi að bakka aðeins núna og skrúfa niður volume-ið, en ég er ákveðinn í að þrauka þessa viku og klára líka næstu þar sem ég bæti en í. Málið er að mér líður vel, fæ ekki strengi og er andlega ferskur. Þegar næsta vika er búin þá fæ ég eina viku þar sem ég hvíli vel og eftir það gæti ég farið að sjá bætingar. Það kemur í ljós því ég fæ 2 samfellda frídaga í röð og tek svo FTP test. Ef ég skít á mig í því, þá kannski bara neyðist ég til að endurskoða þetta allt saman.

Annars er lífið bara ljúft. Það er búið að vera mjög gaman að gegna stöðu teymisstjóra og dagarnir fjúka hjá. Svo kom auðvitað líka launahækkun sem ég græt ekki. 

Kannski ágætt að enda þetta á næringafræði. Maður hefur þurft að vera býsna skynsamur að borða til að standa undir öllum þessum æfingum. Ég hef alveg sukkað eitthvað smá inn á milli en borða að mestu hollt. Smoothie á morgnana og gróf brauðsneið, hrökkbrauð, kotasæla, epli, hummus og gróft kex í millimál og svo yfirleitt hollur kvöldmatur. Í kringum æfingarnar ét ég orkustykki, banana, orkugel, electrolyte blöndu með kolvetni og alltaf prótein og kolvetni á eftir. Ég var nú ekki mjög svangur eftir æfinguna áðan þannig að kvöldmaturinn var hafragrautur með eplum, rúsínum og möndlusmjöri. Í forrétt voru 2 hrærð egg. Áður en ég fer að sofa gúffa ég í mig magnesium með D-vítamíni og fæ mér lýsi. Segi eins og konan sagði "líkaminn er musteri" :)

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap