Árið
Árið gert upp á Strava. |
Strava er þá búið að gera upp árið fyrir mann og það er óhætt að segja að ég hef aldrei hreyft mig svona mikið- allavega ekki eftir að ég byrjaði að nota þetta forrit. Eins og sést á hvítu punktunum þá byrjaði þetta nú voðalega rólega en frá því í vor hef ég verið býsna iðinn. Ég hjólaði 4635 km (12,7 km/dag) og loggaði inn rúmlega 54.000 hæðarmetra. Þetta eru allt í allt 190 færslur og 200 klukkustundir. Ætli megi svo ekki bæta við þetta 1000 km í viðbót sem eru samgönguhjólreiðar sem ég hef ekki nennt að Strava.
Ég er ekki ennþá búinn að smíða æfingaplanið fyrir 2022 alveg en er með næstu 2 vikur til að klára það. Í dag byrjaði ég að bæta lyftingum inn og fór í einn tíma. Tók nokkrar hnébeygjur og setti varla neitt á stöngina en er samt alveg grillaður í löppunum. Þetta sýnir manni bara hvað er mikilvægt að hafa einhverjar lyftingar í prógramminu en ekki bara hjóla. Næstu tvær vikur verða 2 lyftingaæfingar á viku og 4 hjólaæfingar. Svo er ég að hugsa um að taka eitt gott jóga/teygjusession í viku líka.
Þetta er nú það eina sem er af mér að frétta núna.
Ummæli