Gleðileg jól

Æfingar þennan mánuðinn.

Góðan daginn á þessum yndislega Þorláksmessumorgni! Síðasta vika var helvíti góð hjá mér á hjólinu en nú er ég búinn að ná mér í einhvern kvefskít og ekki alveg góður í lungunum. Kannski er ég bara búinn að ganga óþarflega nærri mér. Í morgun ætlaði ég að taka helvíti erfiða æfingu en ákvað að láta gott heita eftir 16 mínútur. Ég var hálfnaður inn í helvíti erfitt sett þegar ég fann að þetta var bara rugl. Þannig að í þetta sinn ákvað ég að láta heilann ráða. En þetta er bara allt ljómandi gott og nú tek ég mér 3 daga frí og kem fílefldur til baka.

Börnin eru búin að vera hjá mér í 2 daga núna en fara til mömmu sinnar á eftir. Ég fer svo upp í Mývatnssveit á morgun og fæ að upplifa jól í gamla húsinu með mömmu og öllu liðinu. Mamma og Egill eru að taka nýja húsið í gegn og búin að flytja sig yfir tímabundið. Ég man ekki hvenær ég eyddi jólunum síðast í gamla húsinu en það hlýtur að hafa verið þegar Helga og Freysteinn voru en á lífi. 

Jæja ekkert rugl, nú þarf ég að fara að taka mig til fyrir skötuát. Gleðileg jól!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap