Dagbók no. eitthvað
Það er orðið býsna jólalegt í H3E |
Maður blikkar auga og þá er allt í einu rúmlega hálf vinnuvika farin. Það er búið að vera býsna mikið annríki í vinnunni og þannig viljum við hafa það, þá líður manni best. Börnin eru hjá mér núna og það liggur vel á þeim. Dagbjört Lóa er komin í jólagírinn og allt snýst um að skreyta, opna dagatöl og merkja inn á dagatal til að geta talið niður. Allt þetta klassíska sem maður man sjálfur eftir og fær nú að upplifa í gegnum börnin. Brynleifur er reyndar mikið rólegri yfir þessu og finnst voðalega gott að fá að hanga í tölvunni, símanum eða lesa bækur.
Í gær kíktum við í sund með Halldóru og Dagbjört fékk að bjóða Heiðrósu með sér. Síðan fórum við heim og átum fiskibollur og tókum smá slökun yfir fréttunum.
Annars er maður búinn að taka smá snúning á jólagjöfum og sending farin af stað til pabba og Hafrúnar og það er alltaf jafn mikill léttir. Og ég lét loksins verða af því að kaupa flugmiða fyrir mig og börnin til útlanda næsta sumar (jólagjöfin til þeirra). Ég gat notað punktana mína og er því ekki með alveg jafn mikið í maganum yfir jóla-visa. Nú á ég bara eftir að kaupa handa Brekku-slektinu og þá mega jólin koma fyrir mér.
Var að detta heim úr vinnunni og ætla að fá mér einn bana og taka svo ruglaða æfingu sem heitir The Wringer. Ég gerði atlögu að henni um daginn en var frá að hverfa eftir helminginn af settunum. Nú stefni ég að því að klára allavega tveimur fleiri sett eða jafnvel æfinguna í heild sinni. Ég finn hvernig formið er að aukast viku frá viku og er bara helvíti ánægður með mig. Held ég sé bara býsna hamingjusamur.
Ummæli