Meiri lasleiki

Ég og Brilli fengum okkur kjúlla í hádeginu í gær.

Nú er Brynleifur búinn að vera veikur og má segja að hann hafi tekið við af Dagbjörtu sem var veik í síðustu viku. Ég efast stórlega um að hann sé með covid en til að vera öruggir, þá förum við í test á eftir. Ætli ég skreppi svo ekki í vinnuna og leyfi honum að dingla heima. 

Talandi um vinnuna, þá má segja að það séu nýjar áskoranir fyrir mig þar. Ég get s.s. ekki sagt mikið að svo stöddu en í rauninni stend ég frammi fyrir því að ákveða hvort ég vilji rísa upp, taka meiri ábyrgð og láta að mér kveða. Það er að sjálfsögðu eitthvað sem maður tekur alvarlega. Maður hefur ekki haldið fullum dampi upp á síðkastið og það hlýtur að vera jákvætt fyrir mann að taka nýjar áskoranir og sýna að maður hefur metnað. Ég greini betur frá þessu þegar hlutirnir skýrast.

Ég fylgdi FTP testinu eftir í gær með Over/Under æfingu sem var í heildina 01:21 klst þar sem ég var í 2x20 mínútur að rúlla sitthvoru megin við FTP-ið (230/255W). Ég hélt ég myndi bugast í fyrra settinu en svo náði ég mér á strik og kláraði þetta með stæl, þrátt fyrir að ég væri orðinn helvíti þreyttur í lokin. Ég á svolítið erfitt með að átta mig á því hversu langt ég er að ganga í þessum æfingum og hvenær ég á að hvíla. Þrátt fyrir að æfingin hafi verið mjög erfið þá var ég orðinn góður þegar ég var búinn að baða mig. Í dag finn ég ekki fyrir neinu. Í dag ætla ég að taka styrktaræfingar og kannski hjóla smá líka.

Ég gaf krökkunum lasagna á mánudaginn sem var með soyahakki, bara svona til að prufa. Það var þrælfínt og þau kvörtuðu ekki. Við ætlum að halda áfram með smá grænmetisþema og í kvöld ætlum við að hafa Linda McCartney borgara með grilluðum kartöflum og salati. Það er matur sem ég mæli eindregið með. Mér finnst það ekkert verra en kjötborgarar og við ánægð með að skera út eina og eina kjötmáltíð. Við höfum haldið ostunum inni en þetta er samt skref í rétta átt.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap