Wött
Aflmælingar úr Strava og Zwift (vött) |
Nú er maður aðeins búinn að dýfa stóru tánni í heim Zwift og inniæfinga. Þetta mun aldrei koma í staðinn fyrir útiæfingar en þetta er ótrúlega öflugt tæki til að bæta sig. Þarna er hægt að finna fullt af góðum æfingum þar sem maður keyrir eftir nákvæmri vattatölu og keyrir sig alveg út. Og þarna er enginn vindur, engin kuldi, engar vegaframkvæmdir eða bílar. Það er hægt að negla hverja æfingu 100%.
Ég tók eina æfingu í gær sem var alveg ágætlega krefjandi. Engir strengir í dag en maður náði púlsinum vel upp. Æfingin samanstóð af upphitun og 12 sprettum @395W og rólegt hjól í 2 mínútur á milli. Ég náði að kæla herbergið vel niður áður en ég byrjaði og svitnaði því ekki nærri því jafn mikið og seinast.
Nú er ég bara ekki alveg búinn að ráða fram úr því hvort ég reyni að stilla upp æfingaprógrammi fyrir veturinn sjálfur eða hvort ég á að finna mér einhvern þjálfara (er með einn í huga). Ég á s.s. alveg að geta lesið mig í gegnum þetta og sett upp eitthvað gott, en ég veit ekki hvort ég nenni því. Það er líka gaman að hafa einhvern til að ráðfæra sig við og spjalla við um þetta. En svo er líka hægt að skrá sig á Trainer road og láta gervigreindina um þetta.
En sama hvað ég geri þá er ég að hugsa um að taka frí frá hjóli alla næstu viku. Maður hefur gott af því enda búinn að hjóla frekar mikið. Síðan í byrjun maí er ég búinn að hjóla 2561 km og þá tek ég ekki allar samgönguhjólreiðar inn í.
Annars er bara allt fínt að frétta. Börnin eru komin heim og því í nógu að snúast. Í gær var voðalega kósý hjá okkur. Við borðuðum góðan mat, spiluðum refaspilið og lásum svo í Fíu Sól og Harry Potter. Í dag fer ég með Brynleifi niður í bæ þar sem hann er að byrja í píanónámi. Svipuð rútína í kvöld. Lífið er ljúft.
Ummæli