Sjálfskipað samfélagsmiðlastraff
Helluvaðsbræður í felum. |
Þá er árlegu gæsaferðinni lokið. Eins og venjulega var þetta hrikalega skemmtilegt, en eins og stundum áður varð ekki mikið úr veiði. Við sátum einn morgun og einn seinnipart og þrátt fyrir mikið flug í kringum okkur, þá fengum við bara eitt flug inn. Afli helgarinnar voru því einungis 2 heiðargæsir. Síðan renndu strákarnir aðeins fyrir lax en það skilaði engu.
Það eru 12 ár síðan Skotveiðifélagið Sperðlarnir voru stofnaðir og síðan þá höfum við veitt á Skaga, í Öxafirði, í Borgarfirði, á Hoffelli við Hornafjörð og svo þarna í nágrenni við Selfoss. Á síðastnefnda staðnum höfum við eiginlega aldrei veitt neitt og því var ákveðið að fara að leita á önnur mið næst. Reyndar stefnir allt í að við förum til Svíþjóðar að ári til að heimsækja Þolla. Ætli það verði ekki mest stangveiði en það er bara gaman að breyta til.
Eins og venjulega snérist þessi túr þó aðalega um mat [ofát]. Við átum hátt í 100 kjúklingavængi, hreindýraborgara, hjartarfille, sænskar pylsur, grillað beikon, hægeldaðar nautakinnar og snakk og nammi í ómældu magni. Ég náði að éta á mig allavega 2 kg og er það ákveðinn gæðsastimpill á ferðina. Ég hef eitthvað verið að reyna að snúa þessu við en það gengur svona og svona.
Annars langar mig að koma hreint fram hérna og viðurkenna að mér hefur ekkert liðið allt of vel síðustu daga- og vikur. Ég hef verið svolítið ólíkur sjálfum mér, áhugalaus um flest nema YouTube gláp og hjólreiðar, ég er óþolinmóður, eirðarlaus, snakillur og stuttur í spunann, jafnvel við þá sem mér þykir vænt um. Ég sinni æfingum og held heimilinu á floti, en þar með er það upp talið.
Ég hef eitthvað verið að kíkja á Tinder en mér finnst nær óyfirstíganlegt að halda uppi eðlilegum samskiptum og er óskaplega áhugalaus að kynnast þeim sem ég tala við. Tilfinningin um að vera bundinn yfir einhverju spjalli og eyða tíma í það er líka að plaga mig. Mér líður eins og ég eigi bara nóg með sjálfan mig og sjálfsagt þarf ég að laga eitthvað til hjá mér áður en ég fer út á galeyðuna. Þegar ég hef gefið af mér til barnanna, þá á ég lítið sem ekkert eftir.
En mig langar að snúa þessu við og ætla að gera smá tilraun á sjálfum mér í október. Það fyrsta sem ég ætla að gera er að eyða Tinder út. Síðan ætla ég að logga mig út af Instagram, Facebook og Snapchat. Ég ætla að gefa þessu frí í heilan mánuð og sjá til hvort það hafi ekki jákvæð áhrif. Síðan ætla ég að hætta að taka tölvu eða síma með mér í bælið og reyna að lesa allavega 3 bækur í mánuðnum.
Ég ætla ekki að hætta að blogga og ég ætla ekki að hætta að lesa fréttamiðla, en ég mun reyna að skrúfa það síðarnefnda niður, enda er það yfirleitt hluti af þessu heilalausa ferli sem það er að taka upp símann fara hring á öllum samfélagsmiðlunum. Ef þetta hefur jákvæð áhrif á mig verð ég að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um hvað ég muni gera að þessum tíma liðnum.
Ummæli