Eitt og annað

Hér ætla ég að reyna að setjast niður í 10 mínútur á dag.

Ég settist niður áðan í ca. 20 mínútur og gerði eina mynd af Trölladyngju sem ég málaði eftir ljósmynd úr ferðinni minni í sumar. Ég notaði bara pensla og reyndi að gera þetta frjálslega. Afraksturinn er kannski ekki til útflutnings en þetta var samt bara gaman. Ég er búinn að setja mér markmið að setjast niður í 10 mínútur á dag í 10 daga og föndra eitthvað. Teikna eða mála. Ég ætla að reyna að losa mig undan pressunni að þetta þurfi að vera eitthvað stórvirki og leggja áherslu á að koma mér að verki og sjá hvert það leiðir.

Í gær hjóluðum við Þórður Eyjafjarðarhring og skelltum okkur í sund á Hrafnagili. Það blés helvíti hressilega á móti okkur á leiðinni suður eftir en það var nokkuð hlýtt og bara skemmtilegt. Fín tilbreyting að hafa einhvern með sér að hjóla. Í gærkvöldi var ég svo að spá í hvort ég hefði ekki gott af því að koma mér út úr húsi og hitta eitthvað fólk. Það var opnun í Kaktus og ég var að bræða það með mér fram til kl. 22:00 hvort ég ætti að fara. En ég endaði á Netflix með snakk og piparmöndlur sem ég tróð í smettið á mér. Mér finnst eins og ég eigi að þegja yfir því, en ég datt inn í Downton Abbey. Og mér finnst líka að ég ætti að þegja yfir því hvað mér finnst þetta ógeðslega skemmtilegt. Ég hef ekki dottið inn í neina þætti í fleiri mánuði og finnst bara næs að hafa eitthvað til að dreifa huganum næstu daga. 

Nú er að nálgast mánaðarmót og fjármálin hjá mér í smá rugli eftir sumarfríið. Reyndar má rekja upphafið alveg aftur til jóla. Síðan þá er ég alltaf að slökkva einhverja elda. Ekki bætti úr skák að það kom í ljós í síðasta mánuði að ég þarf að endurgreiða rúmlega 100 þús kall í ofgreidd laun. Þetta verður eflaust allt í lagi, ég bara þarf að horfa í hverja krónu núna og vona að ekkert óvænt komi upp.

En ég var að spá í þessum peningamálum þar sem ég "þarf" að kaupa mér trainer eins fljótt og hægt er. Við höfum verið heppin með veðrið hérna fyrir norðan en nú styttist í að ekki verði hægt/gaman að hjóla úti lengur. Ég er að setja mér markmið fyrir næsta sumar og ég þarf helst að ná allavega 3 æfingum á viku, þó það sé alveg kominn tími á að hvíla í eina viku.

En varðandi þessa markmiðasetningu þá er ég að reyna að setja mér raunhæf, mælanleg og skemmtileg markmið. Ég ætla að keppa meira en ég gerði núna í sumar, og þó ég setji mér ekki markmið hvar ég enda í mótunum (ég get ekki stjórnað hverjir mæta og hvernig þeir æfa) þá langar mig að gera vel. Markmiðin munu frekar snúa að því að bæta mig eins og ég get og þar er ég mest að horfa á Strava tíma í brekkum. Ég t.d. veit að ef ég bæti tímann minn upp í Hlíðarfjall um 3-4 mínútur, þá er ég orðinn býsna ferskur. Í lokin ætla ég að henda upp þeim hugmyndum sem ég er með í kollinum en á eftir að útfæra betur:

  • Mývatnshringurinn
  • Ormurinn
  • Gagnamótið
  • Brekkukóngur (s.s. taka þátt)
  • Hjóla 200 km í beit
  • Skafa 3 míntútur af tímanum mínum upp í skíðahótel 
  • Skafa 30 sekúndur af tímanum mínum upp skautasvellsbrekkuna

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap