Maturinn klár

Matarskammturinn fyrir 3 fyrstu dagana.

 Smá stund milli stríða hér á bæ. Ég hef verið að halda ansi mörgum boltum á lofti síðustu daga við að reyna að púsla þessu öllu saman og halda heimilinu á floti, æfa og halda uppi skemmtiatriðum fyrir börnin. Í dag er lítið búið að gerast í þessum hjólamálum, en ég náði þó samt að klára allt sem tengist matnum og þreif skiptinguna og keðjuna á hjólinu. Tók líka hjólið hans Brynleifs í gegn og smurði það. Á meðan maður er í þessu stússi man maður svo eftir einu og öðru sem vantar og gerir sitt besta við að skrifa það niður á miða svo það gleymist ekki. Ég á eftir að versla batterí, electrolyte salttöflur, blautklúta og eitthvað meira. Þegar það er búið fer maður svo aftur yfir heildarlistann og reynir að ganga úr skugga um að maður gleymi engu. 

Hér fyrir ofan er mynd af því sem ég ber með mér fyrstu 3 dagana af mat. Ég vigtaði í poka haframjöl, korn og fræ og kókosflögur til að gera hafragraut á morgnana sem ég borða með próteindufti. Fajitaskökur eru betri en brauð; taka minna pláss og geymast vel. Sardínur, þurrpylsa, kaffi, Trek orkustykki og trailmix sem ég setti í poka (hnetur, M&M og suðusúkkulaði. Þurrkað mangó. Í Dreka fæ ég ég mér svo pyslur, nammi ferksa ávexti, snakk og Bríó svona til að gera mér glaðan dag. Maturinn síðustu dagana verður svipaður og hér að ofan auk beef jerky og harðfisks. Að lokum má nefna að ég tek með mér aukalega mat til 3 daga ef eitthvað klikkar.

Núna ætla ég að hrúga saman öllum fötunum sem ég er með á blaði, taka þau inn í stofu og skoða hvernig gengur að púsla þessu saman. Þegar ég verð búinn að því ætla ég svo að athuga hvað þetta er orðið þungt. Ég hef á tilfinningunni að ég verði helvíti þungur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap