Suðurferð
Ég og ótrúlega fallegu systur mínar |
Þá er maður kominn aftur norður yfir heiðar eftir vel heppnaða ferð til Reykjavíkur. Það var eiginlega ekki dauð stund frá því við Halldóra lögðum af stað á föstudaginn og þangað til maður settist aftur upp í bíl um hádegi í dag.
Á föstudaginn fórum við Halldóra að þvælast í búðir og fá okkur að borða. Það var brjálað að gera allstaðar og biðraðir í búðum. Eftir það fórum við svo og horfðum á Hauka tapa fyrir Val í handbolta. Það var frekar súrt enda Geiri hennar Helgu að spila með Haukum. En hann stóð sig mjög vel. Þegar við stóðum í anddyrinu eftir leikinn labbaði Guðni forseti upp að okkur og spurði hvort hann ætti að óska okkur til hamingju eða segja, "það gengur betur næst". Þvílíkur höfðingi.
Á laugardagsmorguninn vaknaði ég klukkan 08:00 og fór út að hjóla. Byrjaði á morgunmat á N1 og fór svo sextíu kílómetra hring um borg og bý. Kom við á Álftanesi til að hitta Skarphéðinn en hann var ekki heim. Um kvöldið var svo útskriftarveislan hennar Helgu heima hjá Jens og Ástu og það var rosalega gaman.
Í morgun hjólaði ég svo upp í Breiðholt og drakk kaffi með Dóra og Sigrúnu. Síðan löbbuðum við Hildur aðeins í bæinn og keyptum okkur allskyns núðlur í einhverri Thai búð.
Ég er s.s. búinn að hjóla 90 km um helgina og er mjög ánægður með það. Mér líður vel í fótunum en hvíldarpúlsinn er kominn í 70 þannig ég veit að ég þarf að sofa vel í nótt og hvíla á morgun. Eðlilegur hvíldarpúls hjá mér er 50 og ég er nýlega búinn að átta mig á því hvað þetta er góður mælikvarði á æfingaálag.
Börnin koma á morgun þannig næsta vika á eftir að fljúga. Æfingar vikunnar verða því væntanlega stuttar og snarpar. En kannski næ ég að koma þeim í pössun um helgina í svona 3 tíma svo ég nái kannski einum 100 km túr.
Ummæli