Hjólaði út í Kristnes í hvassviðrinu. |
Sit í sófanum og Dylan malar á fóninum. Er að reyna að hafa mig í að mála en finn mér allt annað að gera. Þvo þvott, ganga frá og hanga á netinu. Þetta minnir mann á þegar maður átti að vera að læra fyrir próf og fór að gera allt sem maður nennti aldrei að gera dags daglega. Í dag keypti ég mér forláta hjólapeysu/jakka og því veitir mér ekki að því að selja einhverjar myndir. Er með eina pöntun upp á góða summu sem ég fæ greidda um leið og ég klára þannig það er best að koma sér að verki.
Í gær fékk ég einhver helvítis verk í hægra hnéið þegar ég sveiflaði mér tignarlega upp á hjólhestinn fyrir framan leikskólann. Ég fann fyrir þessu í allan gærdag, sérstaklega þegar ég gekk niður brekku eða stiga. Var orðinn logandi hræddur um að þetta væri eitthvað alvarlegt en svo hvarf þetta bara eins og dögg fyrir sólu í dag. Ég hjólaði ábyggilega einhverja 10 km innanbæjar og svo skellti ég mér í 20 km túr í sunnanblæstrinum til að prufukeyra peysuna. Þetta er ítölsk Pedla microfleece peysa- eitthvað sem mig hefur vantað. Hún er hlý, góð og tekur ekki á sig mikinn vind. Svo er hún ógeðslega flott sem skiptir að sjálfsögðu öllu máli.
Á morgun er ég að spá í að fara ca. 70 km og á föstudaginn ætla ég að hjóla úr vinnunni niður í bæ og svo þaðan upp í skíðahótel til að safna nokkrum hæðarpunktum. Annað ekki ákveðið en tek örugglega langan sunnudag. Fyrir utan hjóleríið er lífið bara hvíld og matur- alveg eins og það á að vera.
Ummæli