Eitthvað sem selur

Gerði þessa mynd í gærkvöldi.

Það er best að halda áfram að blogga á meðan maður er í stuði. Nú sit ég stofunni og bíð eftir að sláturkeppurinn í pottinum verði tilbúinn. Ég var svo forsjáll í gær að ég tók út einn kepp og ætlaði að geyma hann í ísskápnum í nótt. Svo þegar ég fór að leita af honum fann ég hann hvergi. Að lokum fann ég hann inni í skáp og hann fór í ruslið. En ég átti annan sem ég henti frosnum í pott. Það munar ekki um einn kepp í sláturtíð sagði einhver.

Annars hef ég verið að mála og það hefur ekki gengið alveg nógu vel, enda langt síðan ég hef gert þetta. Ég er að reyna að mála eitthvað sem ég veit að selst í Dyngjunni, það er alltaf það sama. Gerði þessa dorgmynd og hún er það skásta. Er svo með aðra á teikniborðinu. Sú mynd er miklu frjálslegri, vetrarmynd af Bláfjalli. Ég hef svolitlar áhyggjur af því hvað ég ér áhugalaus við þessa iðju. Ekki eins og hér áður þar sem ég sökk alveg inn í þetta og gleymdi stund og stað.

Annars hefur helgin verið rosalega ljúf. Hef bara dundað hérna heima, hlustað á góða tónlist og hugsað um lífið og tilveruna. Gerði aðra tilraun til að fara í sund í dag og nú mundi ég eftir að taka hjólalásinn með. Það var næs að komast í sund, utan við að ég steig á eitthvað í gufunni sem ég held að hafi verið brundklessa. Hvernig væri bara ef menn rúnkuðu sér heima hjá sér? En það var fullt af fólki og mikið líf þrátt fyrir kulda og nepju.

Annars er bara vinna á morgun og taka á móti börnunum. Þetta verður bara 3 daga vinnuvika og ég er ekki búinn að ákveða hvað við gerum. Brynleifur er að fara á fótboltamót þannig að ef að við förum í sveitina, þá verður það stutt.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap