Biluð plata
Í gær hjólaði ég upp í Skíðahótel. |
Veðrið er búið að vera fínt á okkur hérna norðan heiða síðustu misseri. Reyndar hefur lofthitinn farið nokkuð niður síðustu daga, en það hefur verið sól og stillt veður. Spáin næstu daga er frekar kuldaleg og það mun því riðla nokkuð plönum mínum, sem var að koma mér í form á hjólinu. Ég er nefnilega að spá í að skrá mig í Mývatnsshringinn, sem er fyrsta hjólreiðakeppni sem haldin er í Mývatnssveit.
Ég hef aldrei keppt í hjólreiðum og hef reyndar ekkert sérstakan áhuga á því þannig lagað. Og ef ég á að vera hreinskilinn, þá er ég svolítið stressaður fyrir þetta. Það er meiri taktík í þessu miðað við hlaupin. Maður þarf að velja sér hóp til hanga með, "drafta" og fylgja meiri reglum en eru í hlaupunum. En ég ætla að vera með upp á grín og reyna að taka þessu ekki of alvarlega. Sjáum til hvernig það gengur.
Í gær hjólaði ég upp á skíðasvæði og verð að viðurkenna að það var erfiðara en ég bjóst við. Ég var að spá í að snúa við á miðri leið en lét mig svo hafa það. Þegar ég kom heim var ég svolítið slæmur í lungunum en tíminn hjá mér var reyndar ekkert slakur og ég kem sennilega bara ágætlega undan vetri.
En þegar ég byrjaði þennan pistil ætlaði ég að fjalla um samfélagsmiðla og andlega líðan. Gamla tuggan sem ég hef skrifað um hér hvað eftir annað. Það er svo furðulegt með þetta mál, að það er sama við hvern maður talar, allir hafa sömu sögu að segja, þ.e. að vilja skrúfa niður þessa notkun vegna þess að hún hefur ekki góð áhrif á mann. En það er eins með þetta eins og að hætta að reykja eða taka mataræðið í gegn, fólk ýtir þessu á undan sér og segir "á morgun, þá geri ég eitthvað".
Þannig að í kvöld þegar ég leggst upp í rúm mun ég eflaust horfa á bókina á náttborðinu, taka svo upp tölvuna og segja við sjálfan mig "ég fer að gera eitthvað í þessu á morgun".
Ummæli