Allt á svartakafi!!

 

Á leið heim úr vinnu

Það er óhætt að segja að okkur sé að snjóa inni hérna á Akureyri þessa dagana. Ég man ekki einu sinni lengur hvenær þetta byrjaði, en þetta er ábyggilega dagur 4 eða 5. Fyrstu dagana var búið að hreinsa stígana vel fyrir klukkan 8 á morgnana, en í gær og í dag (laugardag) hafa þeir ekki lengur undan. Ég barðist á hjólinu í vinnuna í gærmorgun og það var býsna mikið átak fyrripart leiðarinnar. Þegar ég fór heim var búið að klára að hreinsa. 

Ég er ótrúlega sáttur við hvað hefur gengið vel að hjóla hjá mér og ég er að elska þetta hjól svo mikið... var ég búinn að segja það áður?

Brynleifur að taka planka

Það hefur verið kósý hjá okkur börnunum það sem af er helgi. Í gær var lögbundin pizza og kósýkvöld. Í dag erum við svo búin að taka æfingar og fara í gegnum fataskápana hjá þeim. Við skrifuðum líka niður hvað þau vantar af fötum. Síðan er ég búinn að vera að fara í gegnum dót í stofunni og taka niður hluti og minnka drasl. Ég er með það á stefnuskránni að losa mig við eins mikið af dóti og ég get. Mér líður mikið betur þegar það er ekki allt hlaðið af dóti út um allt. Ég veit ekki afhverju, en það skiptir s.s. engu máli. Það hlýtur að vera jákvætt að losa sig við dót og reyna að slíta tilfinningatengingar við hluti almennt.

Nú er maður búinn að ná rúmlega viku í ræktinni og búinn að taka einhverjar 5 æfingar. Ég er í ótrúlega góðu standi og nánast verið strengjalaus, þrátt fyrir langa pásu. Þessi aktívi lífstíll er heldur betur að skila sér og ef ég á að vera hreinskilinn, þá er ég að rúlla þessum æfingum upp sem búið er að leggja fyrir okkur. Ég er reyndar aðeins aumur í bakinu í dag en það skrifast sennilega á snjómokstur í gær. Ég ákvað að hvíla ræktina um helgina en ætla að reyna að fara á mánudag og þriðjudag. Svo fer ég til Reykjavíkur og verð þar að vinna í nokkra daga.

Það næsta sem ég ætla að gera uppbyggilegt í lífinu er að reyna að skera niður óþarfa kostnað og munað sem ég hef verið að leyfa mér. JólaVisa er að detta inn og ég er að sjá á eftir peningum sem ég hefði gjarnan vilja nota í eitthvað annað. Ég er s.s. ekki kominn með margt sem ég ætla að gera, en það sem er efst á dagskrá er að skoða aðrar leiðir varðandi internet og sjónvarp. Ég er að borga fokking 20.000 kall á mánuði með tengigjaldi!! Þetta eru 240.000 kr. á ári!! Ég ætla að hætta að kaupa sódavatn nema til hátíðarbrigða og reyna að éta ódýrari mat. Ég ætla að leggjast aðeins yfir þetta allt saman og skrifa svo pistil um hvernig ég set þetta upp og hvernig gengur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap