Skák og mát
Brynleifur íhugar næsta leik |
Barnlausa vikan hjá mér hefur verið fín, en mjög róleg. Ég reyndar hljóp undir bagga með Guðrúnu á fimmtudaginn og var með börnin hjá mér fram að kvöldmat. Það var kærkomið og við drógum fram skákborðið sem ég fékk einu sinni frá pabba og Hafrúnu í jóla- eða afmælisgjöf. Ætli ég hafi ekki verið á aldur við Brynleif. Brynleifur kann eitt og annað fyrir sér í skák en Lóa er ekki búin að læra mannganginn, þannig hún var með mér í liði. Brynleifur spilaði mjög varnasinnaðan leik og það gerðist í raun ekkert fyrr en við Lóa fórum að láta okkar menn vaða út í opinn dauðann. Í lokin lékum við hvern afleikinn á fætur öðrum þar til Brynleifur loks náði að máta okkur og gleðin yfir sigrinum var ósvikin.
Ég skal alveg viðurkenna að ástæðan fyrir því að ég dróg fram skákborðið er einfaldlega sú að ég horfði á Queens gambit um daginn. Ég hafði mjög gaman að því að horfa á þetta og leyfði mér ekki að fara út í of miklar pælingar um að þetta strikaði út áhæfuverk feðraveldisins á einu bretti og eitthvað da dí da. Ég fílaði leikarana, myndatakan var geggjuð, settið, litirnir, stíllinn og fötin voru alveg mergjuð. Ég bara naut þess í botna að horfa á þessa krúttlegu hetjusögu og lét fátt trufla mig. Beth Harmon er einhver mesti töffari sem hefur komið fram á sjónarsviðið lengi.
Ummæli