Gamlársdagur
Ég og ungarnir mínir á vatninu. |
Nú er ég fyrst og fremst að stimpla mig hér inn til að fylla inn í eyðu og kvitta fyrir árið. Við börnin höfðum það mjög gott yfir hátíðirnar og við brölluðum ýmisslegt. Fóru í Mývatnssveitina á jóladag þar sem við komumst í fjárhúsin og skruppum út á vatn að leika okkur. Við reyndar vorum ekki með skauta en það var samt gaman. Annars var bara áherslan lögð á að spila, leika sér með jólagjafirnar og hafa það gott.
Nú eru börnin komin í Skagafjörðinn með mömmu sinni og ætla að vera þar yfir áramótin. Þetta verða fyrstu áramótin sem ég verð ekki með þeim og það er svolítið skrítið. Ég hef ekkert verið að velta því of mikið fyrir mér en er viss um að það verður tregablandin stund þegar klukkan slær 12 í kvöld. En þetta er eitthvað sem maður verður að venjast og kannski má segja að þetta sé enn ein varðan í þessum tilfinningalega rússíbana sem skilnaðarferlið er.
En ég held að ég geti sagt að í heildina hafi árið verið býnsa gott og nú ætla ég að taka það helsta saman sem mér finnst skipta máli.
Á Aðfangadag |
Börnin hafa verið heilbrigð og dafna vel. Þrátt fyrir skilnað, búferlaflutninga og COVID, þá hefur okkur tekist að halda utanum þau og passa að þau líði ekki fyrir allar þessar breytingar. Þau eru ótrúlega jákvæð og skemmtileg og maður er þakklátur fyrir hvern einasta dag sem maður er með þeim. Helsti gallinn er bara að þau verða orðin fullorðin áður en maður veit af.
Í H3E |
Húsnæðismálin voru í lausu lofti lengi vel en svo leystust þau farsællega þegar ég náði að kaupa í Hjallalundinum. Ég er ótrúlega ánægður og stoltur af því hvað ég hef komið okkur vel fyrir. Íbúðin var ekki upp á marga fiska en ég sá alltaf "potential" í henni. Með lágmarks tilkostnaði og mikilli vinnu hef ég búið okkur gott og öruggt heimili við hliðina á skólanum. Frábært útsýni, 3 leikvellir og 2 mínútur að labba út í búð. Gæti ekki verið betra.
Vinnan hjá mér hefur gengið upp og niður, eins og gengur og gerist- en í heildina held ég að það hafi bara gengið vel. Stjórnsýslan er svo seigfljótandi að árangur og hraði verkefna stjórnast ekki endilega af manns eigin dugnaði. Þegar ég horfi yfir þessi tæpu 3 ár sem ég hef verið hjá stofnuninni, þá hef ég komið á ýmsum jákvæðum breytingum og náð að þoka verkefnum í rétta átt.
Mynd sem ég gerði fyrir Bjössa Þorláks vin minn fyrir jólin. |
Listin hefur nú ekki verið að blómtra hjá mér en ég tók samt smá kipp fyrir jólin og gerði 4 myndir sem heppnuðust ágætlega. Ég þarf að fara að komast af stað aftur, bæði vegna þess að þetta er svo gott fyrir mig og vegna þess að það munar svo helvíti mikið um þetta í heimilisbókhaldinu. Ég þarf að fara að setjast niður og gera nokkrar litlar Mývatnsmyndir til að setja í Dyngjuna.
Fjármálin hafa í raun aldrei verið betri hjá mér. Ég á nóg til að borga reikninga hver mánaðarmót án þess þó að lifa eins og fátæklingur. Auðvitað hangir þetta allt á því að ég haldi vinnunni en þannig er það nú hjá flestu fólki. Það versta sem gæti gerst væri að ég þyrfti að selja íbúðina og þá væri ég skuldlaus ef frá eru talin smá námslán.
Hreyfing og líkamsrækt hafa gengið vel þrátt fyrir þetta Covid. Ég er búinn að "samgönguhjóla" miklu meira en árið áður. Nýja hjólið hefur gert mér kleift að dröslast bæinn endana á milli og maður heldur sér því við. Ég átti fína spretti eftir að ég skipti yfir í Training For Worriors og fór yfirleitt 3-4 sinnum í viku. Eftir að því lokaði hef ég gert æfingar heima nánast upp á hvern dag. Þetta er öfgalaust, ekki þrúgandi og er að skila árangri.
Í verslunarferð á Puggnum. |
Hjólamennskan er náttúrulega orðin órjúfanlegur hluti af mínu lífi eins og hefur oft komið fram hér á blogginu. Eins og kom fram í pistlinum hér á undan þá er ég orðinn þokkalega sáttur við þann lager sem ég er búinn að koma mér upp. Ég sé fyrir mér að næstu 2 árin muni ég einbeita mér að því að uppfæra þau hjól sem ég á fyrir og í febrúar stefni ég að því að skipta um gíra á ferðahjólinu. Síðan þarf ég að eyða einhverjum peningum í búnað fyrir fjallaferðina. Já og svo reyndar þarf ég að kaupa nýtt hjól handa Dagbjörtu Lóu.
Á leið í ævintýraferð í Kjarnaskóg. |
Sopinn góður |
Ummæli