Erfið vika
Ég verð að viðurkenna að þetta er búin að vera óvenju erfið vika. Ég hef ekki náð að einbeita mér í vinnunni og ekki haft orku í að gera neitt umfram það að halda heimilinu á floti. Börnin eru reyndar í fínu jafnvægi og ég hef verið duglegur að næra þau andlega og líkamlega, það er s.s. fyrir mestu. Ég veit ekki alveg hvað gengur að mér en hef grun um að þetta tengist því að hafa verið að vinna heima síðustu vikuna. Maður hefur alltaf gott að því að komast meðal fólks og vera í rútínu.
Ég hef náttúrulega áður lent í þessu en núna einhvern man ég ekki alveg hvernig ég hef náð að snúa þessu við hingað til. Ég er almennt séð áhugalaus, bæði um áhugamálin og vinnuna, hef enga einbeitingu, er þungur á mér og dofinn. Í vinnunni finnst mér ég standa einhversstaðar undir fjallsrótum, illa búinn og eigi eftir að klífa upp ótal fjöll. Ég veit að þetta hljómar ekki vel en sem betur fer held ég að ég hafi einhver verkfæri til að snúa þessu við.
Ég ætla að taka mig til og búa til 2 lista. Annar listinn eru verkefni sem ég ætla að gera í persónulega lífinu, þ.e. varðandi matarplön fyrir kvöldið, setja nagladekkin undir hjólið og kannski laga til í geymslunni. Hinn listinn eru verkefni sem ég ætla að vinna í í vinnunni. Ég þarf að plotta upp vekefnin og forgangsraða.
Ef mér tekst þetta og kemst af stað í þessi verkefni veit ég fyrir víst að mér mun líða betur strax. Þetta hljómar svo auðvelt og basic en er næstum því óyfirstíganlegt á þessu augnabliki. Ég set mér líka það markmið að setja inn færslu á morgun hvernig staðan er og þannig set ég smá pressu á mig að sparka í rassgatið á sjálfum mér.
Ummæli