Sumarfrí í rólegheitum

Það er orðið svo langt síðan ég bloggaði síðast að ég nenni varla að fara yfir allt sem á daga mína hefur drifið síðan þá. Hjólaferð frá Höfn á Mývatn (sem vær æði), hjólaferð með börnunum í Kjarna, almenn slökun, smá málerí og núna snýst allt um að skipuleggja ferð á hálendið næsta sumar. Ekki ráð nema í tíma sé tekið.... eða segir maður það ekki?

Eins gaman og það er nú að þvælast á hjólinu í útlöndum þá kveikti hjólaferðin hér heima svo rosalega í mér með að fara upp á hálendið. Náttúrutengingin sem ég náði í þessari ferð var bara svo sterk. Ég hefði svo gjarnan viljað komast úr umferðinni á einhverja fáfarna slóða. Núna er ég að vinna í að taka saman lista yfir allt sem ég þarf fyrir hálendisferð og það er fátt annað um það að segja annað en að: hann er langur og hann er dýr. Rándýr! Ég birti hann seinna.

Það er gott að hafa veturinn fyrir sér í að skipuleggja þetta því að ýmsu er að huga. Að fara í venjulega hjólaferð á malbiki er lítið mál miðað við þetta. Þar getur maður mokað drasli í töskurnar þar til þær eru fullar og verið með nóg af öllu. Alltaf stutt í búðir. En í svona hálendisferð þarf allt að vera skorið við nögl á sama tíma og maður þarf að geta glímt við straumvötn, sandstorm og kulda.

Mér liggur ekkert á að velja leiðina fyrir næsta sumar en ég hef samt aðeins legið yfir því, bara vegna þess að mér finnst það ógeðslega gaman. Mig langar að fara hjólandi frá Akureyri og koma hjólandi aftur til Akureyrar. Ég er að skoða leiðir í gegnum Bárðadal, Suðurárbotna og svo þvæling á svæðinu norðan Vatnajökuls. Mig langar að fara í Kverkfjöll en það er eiginlega "Dead end" þannig að ég þyrfti að hjóla svo langt aftur til baka ef ég ætlaði að fara hring. Ég hef s.s. líka komið í Kverkfjöll og farið á jökulinn. Það eina sem ég held að sé því nokkuð ákveðið sé að fara úr Eyjafirði yfir Vaðlaheiði/Bárðadal/Suðurárbotna og koma aftur niður í Eyjafjörð vis Sprengisandur með viðkomu og baðferð í Laugafelli. Það er hægt að gera ótal varíasjónir á þessu. Ég væri til í að taka í þetta 2 vikur.

Meira síðar





Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap