COVID- óþægindi
Mynd sem ég málaði í gær án þess að teikna neitt á undan. Á leið úr leikskóla, Hlíðarlundur/Lundarsel |
En mest fer í taugarnar á mér þessi tilfinning innilokunar, ekki ósvipuð tilfinningunni sem maður fær þegar allt er lokað vegna ófærðar (sem nóg var af fyrir). Maður getur ekki bara stokkið í ræktina, út í búð eða með börnin í afmæli þegar manni dettur í hug. Þetta ástand er svo fyrst og síðast bara óraunverulegt. Tveggja metra fjarlægð, spritt, börnin heima, vinna heima.... manni líður eins og í bíómynd.
Í gær (sunnudag) hélt ég mig heima allan daginn (ekki út af veirunni samt), hafði það gott, las, horfði á Would I lie to you og var nokkuð iðinn við málningarvinnuna. Ég var með mission um að mála minnst 5 myndir án þess að teikna neitt á undan. Það er fín æfing, sértaklega ef maður er búinn að vera of stífur (tight). Það kom svo sem ekkert gott út úr þessu hjá mér nema þessi litla mynd sem er "tekin" rétt við leikskólann hennar Dagbjartar Lóu. Ég tók mynd á símann minn á móti sólinni sem skein í gegnum greinarnar á öspunum og vörpuðu löngum skuggum yfir ruddan göngustíginn. Það sem ég er einna mest ánægður með er birtan sem fellur á skaflinn fyrir miðri mynd til hægri- þetta gefur myndinni trúverðugra yfirbragð. Það eru svona smáatriði eins og hvernig birtan fellur á ákveðna hluti sem skipta öllu.
Ég prufaði að auglýsa eftir fjallahjóli inn á fésinu. Það hafði einn maður samband og bauð mér vel með farið Trek Stache 5 2017 módel á 100 þúsund. Ég held að það teljist gott boð, sérstaklega í ljósi þess að hann keypti undir það felgur í fyrra sem kosta nýjar það sama og hjólið. Eini gallinn er að ef ég hefði verið að kaupa hjólið nýtt, hefði ég sennilega alltaf valið einni stærð fyrir ofan. Ég allavega þori ekki að slá til öðruvísi en að prufa það fyrst og það er í Reykjavík.
Ég tók þá ákvörðun um helgina að sleppa ræktinni þessa vikuna hið minnsta. Ég er með 12 kg bjöllu heima, dýnu og rúllu. Ég ætla að búa til heimaprógram og rúlla yfir það á hverjum degi næstu daga/vikur. Reyna frekar að hafa það stutt og gera oftar. Hendi því inn hérna þegar ég er búinn að ákveða hvernig það verður.
Að lokum, ég er að hugsa um að fara með börnin upp í Mývatnssveit um miðja vikuna. Það er reyndar ennþá óljóst hvernig verður með skóla og leikskóla en ég kippi þeim þá bara úr skólastarfinu í 2-3 daga. Sjálfur get ég unnið heima og finnst bara fínt að fara upp í sveit og losna úr hringiðunni hér. Sjálfskipuð sveitasóttkví.
Ummæli