Tilfinningabylting
Ég er búinn að vera að lesa aðeins upp á síðkastið. Var að klára að lesa bókina Tilfinningabyltingin eftir Auði Jónsdóttur. Bókin fjallar um skilnað hennar við manninn sinn til 18 ára- og í kjölfarið ferðalagið í gegnum þetta anstyggilega ferli, sem skilnaður er. Þar leitar hún til æskuáranna og reynir að varpa ljósi á ferlið með því að ná betri skilningi á sjálfri sér. Hún fjallar mikið um hvernig uppeldi, barnæskan og áföll móta okkur og samskipti okkar við annað fólk.
Það sem ég tengdi kannski sterkast við í bókinni er hvernig hún reynir að vinna sig út úr þessu með skrifum, og þá einna helst hversu erfitt það er að vera heiðarlegur við sjálfan sig og þora að skrifa beint frá hjartanu og opinbera sig. Hætta að ritskoða sig. Ég hef átt í mikilli baráttu við sjálfan mig í þessum efnum og aldrei alveg kunnað við að slengja svona persónulegum hlutum hér fram á blogginu. Í bókinni kynnist hún hinsvegar manni sem hún fer að opinbera sig við með tölvupóstskrifum. Á milli þeirra ríkir líka einhver kynferðisleg spenna (finnst mér) þrátt fyrir að hann sé mjög ólíkur henni. Kapítalisti. Yin/Yang.
Mín kenning er reyndar sú að þessi vinur hennar sé skáldaður upp og hann sé einhver skuggapæling sem hún nýtir svo sem einhverja gátt til að hleypa út heiðarlegum pælingum.
Eftir að ég lauk bókinni fór ég að gramsa í dóti hérna í stofunni og fann bókina Ósjálfrátt sem er líka skáldsöguleg æfisaga eftir Auði. Ég var aldrei búinn að klára hana. Ætli það sé þá ekki bara verkefni þessarar viku.

Ummæli