Betri tíð með blóm í haga....

Jæja þá er maður kominn frá Reykjavík eftir vinnuferðina. Kominn aftur í snjóinn hér fyrir norðan, allt á svartakafi. En veðrið er stillt og það er alveg óhemjufallegt að ganga um bæinn. Þvílíkt jólalegt.

Ferðin til Reykjavíkur var alveg frábær. Lúxus að geta verið á góðu hóteli og éta góðan mat. Vinnufélagarnir mínir eru líka svo frábærir. Það er alltaf stuð hjá okkur. Það er miklu mikilvægara heldur en að verkefnin séu endilega súper spennandi alltaf.

Eftir hressilegt bakslag í andlegri líðan síðustu daga er ég aftur á uppleið. Þetta var bara klassískt skilnaðar-shit, heilu ári eftir skilnað. Fock hvað þetta er þrautseigur andskoti. En ég allavega tók mig til og skrifaði mjög persónulegt bréf, sem ekki var gert til að senda það. Það virðist hafa haft jákvæð áhrif og nú er allt á uppleið. Um að gera að skrifa bréf til fólks sem maður á eitthvað vantalað við. Jafnvel þó maður ætli ekki að senda þau.

Nú lítur allt út fyrir að við séum að ná að selja Dalsgerðið. Við erum búin að skrifa undir með fyrirvara um eitthvað greiðslumat hjá 3 aðila, en það lítur víst mjög vel út.
Það er mjög jákvætt en hefur líka hrært upp í manni tilfinningalega. Selja sína fyrstu eign sem maður ætlaði að ala upp hamingjusömu vísitölufjölskylduna í.

En mikið held ég að ég muni hafa gott af því að komast einhvert annað. Þá fyrst verður nýtt upphaf, nýr núllpunktur. Ég er með augastað á einni íbúð sem er búin að vera lengi á sölu. Sjáum hvað setur í því efni.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap