Allt með kyrrum kjörum á norðurvígstöðvunum
Héðan er ekkert nýtt að frétta. Lífið gengur sinn vana gang. Átti reyndar að vera í Reykjavík og Höfn í Hornafirði þessa vikuna en óveður á sunnudaginn setti strik í reikninginn svo ég varð heima að sitja. Ég varð reyndar svolítið feginn. Mér finnst ágætt að vera bara heima hjá mér og halda rútínu.
Ég er búinn að fara tvisvar í ræktina í þessari viku og verð að taka frí á morgun. Þetta voru bilaðar æfingar og ég er útúr strengjaður. Nú verð ég að fara að gíra mig niður aftur svo ég gangi ekki alveg fram af mér.
Þórður kíkti á mig í gær og við erum að vinna að því að éta upp úr kistunni. Steiktum gæsabringur og átum með brokkolí og sveppasósu. Þetta var ketó máltíð par exellence og nú ætti maður að vera kominn í fína ketósu eftir smá hliðarspor.
Eftir matinn horfðum við á þessa frægu veganmynd á Netflix; "The game changers". Ég verð að viðurkenna að mér fannst hún býsna mögnuð þó maður verði að hafa í huga að hún sé nokkuð mikið hlutdræg. En það sem stendur uppúr (og maður reyndar vissi) er að mannskepnan gerir engar lífeðslisfræðilegar kröfur um að fá dýraafurðir. Við getum fengið allt sem við þurfum úr plöntum ef við fáum bara réttar fitu- og amínósýrur. Einnig kom manni á óvart hvað margir hafa náð geðveikum árangri í íþróttum með því að skipta út dýraafurðum.
Ég ætla að klára gott ketótímabil fram að jólum og svo er ég að hugsa um að skipta yfir í veganfæði eftir jólin. Það verður gaman að ögra sér aðeins og prufa eitthvað nýtt. Svo er það bara svo fjandi gott fyrir umhverfið, þ.e. ef maður gerir þetta rétt.

Ummæli