Örfréttir

Útsýnið úr vinnunni í dag.

Bloggin mín eru nú flest voðalega svipuð þessa dagana. Bara eitthvað smá fréttaskot af því hvað gengur á í mínu lífi. Kannski ágætt að það sé ekkert of mikið; það er þá allavega ekki slæmt á meðan.

Hér er farið að snjóa. "Pabbi, ertu núna tilbúinn í snjóinn?", segir Dagbjört Lóa oft við mig. Nei, því miður, er ekki alveg að nenna þessu.

Það er búið að snjóa nokkuð mikið í gær og í dag. Göngustígarnir eru illa mokaðir og þetta tefur heilmikið fyrir furðufuglum sem ekki eiga bíl.

.... ég gleymdi að klára þetta blogg í gær en geri það þá bara núna..24 tímum síðar....

Það heldur áfram að snjóa og nú er kominn helvítis strekkingur með þessu. Götur verða sennilega fljótt ófærar. Skiptir mig og Dagbjörtu Lóu ekki máli, við erum bara á Stiga.

Maður er að reyna að gíra sig andlega upp í þetta helvíti samt. Reyna að sætta sig við að sviba veðurfar minnkar veröld manns heilmikið. Ferð á bókasafn, í Byko [að kaupa skóflu]- eða fara í sund er heilmikið vesen.

En hver þarf nýja bók, nýja skó eða að fara í sund. Við erum með nýuppgert bað.

"Pabbi, hvenær getum við fengið okkur heitt kakó og piparkökur", spurði Brynleifur í gær. "Um jólin", svaraði ég. Nú hef ég skipt um skoðun, það verður í dag.

Nóg af þusi....


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap