Innri dímónar
Um helgina dreymdi mig að ég var að höggva fólk til bana, fyrst með öxi og svo með sveðju. Ég læddist framhjá einhverjum vörðum og inn í myrkvað herbergi þar sem fólkið svaf í kojum og lét til skara skríða. Beitt blöðin smugu í gegnum holdið eins og heitur hnífur í smjöri og stóðu að lokum föst í beini- þannig að smá átak þurfti til að kippa að sér vopninu aftur. Ég hjó og barði af öllum lífs og sálarkröftum. Ég man ekkert hvaða fólk þetta var, né hef ég nokkra hugmynd um hvað mér gekk til. Og ég verð að viðurkenna að mér leið ekkert sérstaklega vel þegar ég loks hrökk upp til að fara að pissa. Hvaðan kemur svona viðbjóður?
Þegar ég vaknaði morguninn eftir var mér svo hugsað til Carl Jung og bókarinnar hans sem liggur hálf-kláruð á náttborðinu mínu. Ætli Jung hefði ekki túlkað þetta sem svo að ég hafi verið að stíga inn í undirmeðvitundina [táknuð sem dimmt herbergi]. Þar hitti ég fyrir allskyns dímóna sem ég hef verið að horfast í augu við upp á síðkastið [með nokkurskonar sjálfskoðun eða innra uppgjöri]. Nú hef ég horfst í augu við þá marga og þannig missa þeir mátt sinn [ég slátra þeim].
Ég nenni ekki að útskýra þetta í löngu máli hér en stutta máli en ég er allavega búinn að vera í smá innri vinnu. Ef einhver hefur áhuga á að kynna sér það ætti sá hinn sami t.d. að gúggla "shadow work". Æi þetta er farið að hljóma eins og ég sé brjálaður..... en ég er það ekki......

Ummæli