Erilsöm vika að baki
Þessi vika hefur þotið hjá á ljóshraða, enda í nógu að snúast. Mestur tími fór í að undirbúa gæsaferðina sem er í fyrstu vikunni í október. Ég er búinn að taka til allt fyrir ferðina og Þórður fór með það suður í dag. Ég fer svo með flugi suður þann 30. september, vinn í Reykjavík í 3 daga og svo leggjum við af stað í Ölfusið 3. október. Full mæting og mikil spenna. Við Þórður gerðum líka að gæsunum 15 sem við skutum um síðustu helgi og eigum því vel að éta í kistunni.
Æfingar vikunnar gengu vel. Ég er reyndar búinn að vera frekar slæmur í öxlunum en hef reynt að aðlaga æfingarnar að því, taka léttara og gera það vel. Í dag var reyndar æfing sem ég gat tekið á full power (Wall Ball, Ketilbjöllusveiflur, Slam ball og þung résstaða) og er því þokkalega búinn á því. 4 æfingar komnar og svo ætla ég að reyna að hjóla 40 km. á sunnudaginn.
Hef ekki haldið mig alveg við ketó þessa viku og ákvað að hafa sukkdag í dag. Fékk mér einn borgara í hádeginu og slatta af kexi með smjöri í millimál. Ætla núna að rölta í bæinn og fá mér eina eldbakaða pizzu og leggjast svo í sófann og fá mér Vald-ís og osta puffs. Á morgun ætla ég svo að snúa til betri vegar og éta bara "hreinan" og góðan mat næstu 2 vikurnar.
Ást og friður,
Bjarni

Ummæli