Skítakuldi og leiðindi.
Ég leyfi mér að efast um að það þjóni almennt miklum tilgangi að þusa yfir veðrinu. Það er allavega andstætt öllum straumum í núvitundarfræðum sem nú tröllnauðga öllu. En veðrið er ömurlegt, bara svo það sé sagt. Og samkvæmt spánni, þá er það ekkert að fara að breytast.
Ég spái köldu sumri. Reyndar eiginlega ekki sumri, heldur meira svona léttum vetri á vitlausum árstíma. Honum fylgja almenn leiðindi, einn horaður ísbjörn með gyllinæð kemur á land á Skaga og mikið þunglyndi verður norðan heiða.
Þetta verður rothöggið fyrir ferðaþjónustuna sem nú þegar á undir högg að sækja. Ferðamenn flýja til sinna heima eftir kalt frí og segja "Farið aldrei til þessa hræðilega lands- við erum langt komin með ævisparnaðinn eftir vistina þarna, kalin á líkama og sál".
Við sem þjóð reynum í örvæntingu að leita aftur í gömlu góðu grunnatvinnuvegina en loðnan er dauð, þorskurinn helskjúkur af laxalús og enginn vill borga almennilegt verð fyrir kindakjöt þar sem allir eru orðnir vegan.
Þá er okkar eina haldreipi sjókvíaeldið en allar kvíar verða löngu botnfrosnar og einu laxarnir sem sluppu lifandi liggja hríðskjálfandi í Laxá í Ásum og velta fyrir sér hvernig þeir komist aftur heim til Noregs.
Eitt leiðir af öðru og snemma á næsta ári verður biðröð við Látrabjarg þar sem fólk hendir sér umvörpum niður í stórgrýtta ströndina fyrir neðan.
Góðar stundir,
Bjarni
Ps. Athugið að þetta eru svona bara meginlínurnar varðandi þróun atvinnuveganna en ég get farið dýpra í þetta sé þess óskað.

Ummæli