Reykjavík

Er staddur á suðurlandinu þessa vikuna. Það er reyndar þétt dagskrá hjá mér þannig að ég reikna ekki með að hitta nokkurn mann utan við vinnuna. Ég er 2 daga að vinna í bænum á námskeiði og fundum en fer svo í sviðsferð í Fljótshlíðina sem tekur 2 daga plús. Stefni að því að fljúga norður á föstudaginn og þá er ég jafnvel að spá í að hjóla austur í Mývatnssveit.

Annars ætlaði ég að skrifa hér niður skemmtilegar samræður og gullkorn sem ultu upp úr börnunum mínum um helgina en bíð með það þar til á morgun. Maður verður að vera duglegri við að skrifa þetta, maður er svo fljótur að gleyma.

Annars hef ég lítið getað hjólað vegna veðurs (svo var ég með börnin), en náði þó 40 km. í gærkvöldi. Það gekk fínt en ég varð reyndar svolítið aumur í rassinum og fékk aðeins verk í mjóbakið. Þetta vonandi lagast þegar ég fer að geta farið reglulega.

Búinn að vera í ruglinu með matinn en skellti mér í ræktina á hótelinu og át salat á eftir. Ætla aftur í ræktina á morgun en svo verður væntanlega rólegt hjá manni fram að helgi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap