Framkvæmdum lokið
Framkvæmdum lokið. |
Þar sem ég var byrjaður að brasa hér eitthvað fyrir utan var ekki annað að gera en að klára það, jafnvel þó við værum búin að skrifa undir kauptilboð. Helgin fór í þetta að mestu en auk þess sló ég garðinn og hér sunnan við húsið og var svo annars bara að dunda mér við að laga eitthvað til. Ég var nú einhverstaðar með myndir af því hvernig þetta leit út fyrir, en ég nenni ekki að grafa þær upp. Þetta er allavega orðið ágætt.
Mér fannst fínt að vera að dunda mér í þessu, alls ekki leiðinlegt, en einhverra hluta vegna tók ég samt einhverja andlega dýfu í gær og dag. Farinn að velta mér upp úr einhverju sem ég ætti ekki að vera að hugsa um og farinn að heyja einhverjar orustur í kollinum á mér og setja upp einhver senario sem vonandi koma aldrei. Einhver særindi sem ég á eftir að vinna úr en svona er ferlið bara.
Krakkarnir komu heim í dag og það er alltaf notalegt (þó það sé djöfull mikið puð:). Gerðum nú ekki margt- bara verslað fyrir vikuna, lært og eldað. Á morgun ætlum við að flytja fötin hennar Dagbjartar í herbergið sem hún sefur í og fötin hans Brynleifs yfir til hans. Þetta finnst Dagbjörtu mjög spennandi enda mikil dellumanneskja þegar kemur að fötum.
Þar sem við erum vongóð um að húsið fari nú að seljast er ég farinn að skoða í kringum mig á markaðnum aftur. Er með 2 sambærilegar íbúðir í sigtinu hérna rétt hjá. Ég var búinn að skoða aðra þeirra fyrir margt löngu (og leist vel á) en ætla samt að kíkja á þær báðar á morgun ef ég get.
Ummæli