Allskonar

Cateye Velo hjólatölva

Er kominn austur í Mývó með ungana mína í sauðburðinn. Ætlum að dvelja hérna um helgina og gera gott úr þessu þrátt fyrir skítakulda og snjó. Fórum aðeins í fjárhúsin eftir kvöldmatinn og börnin eru strax búinn að finna lítinn hrút sem vill helst liggja í garðanum og láta kjassa sig. Dásamlegt.

Annars komst hreyfing á húsnæðismálin í dag. Fengum tilboð sem við vorum næstum því sátt við og stefnum að því að koma með gagntilboð. Tilboðið er reyndar með fyrirvara um að fólkið nái að selja sína íbúð og við bara leggjumst á bæn.

Ég fór á Bike24 og pantaði mér slatta af dóti sem mig vantar fyrir hjólaferðina. Var alsæll með kaupin en fékk svo tölvupóst sem ég hafði beðið eftir og þar sagði að standarinn sem ég pantaði passi ekki á hjólið. Nú jæja.... ég verð þá bara að reyna að selja hann og kaupa einhvern annan.

Af því sem ég var að panta er ég einna mest spenntur fyrir hjólatölvunni. Þessi tölva er lítil og einföld en gefur upp allt sem maður þarf að vita í hjólaferðinni, þ.e. vegalengd (heildar og hvern dag/legg), hraða, meðalhraða, elapsed time og svo er að sjálfsögðu klukka. Batteríið ætti að endast í ca. ár og maður er því laus við endalausar hleðslupælingar.

Þetta er ekki GPS heldur festir maður skynjara á gaffalinn og segul á teinana og hraðinn og vegalengdin reiknast eftir snúningi dekkjana. Þetta er það allra einfaldasta, enda kostaði þetta ekki nema 2.800 krónur. Ég er spenntur að sjá hvernig þetta virkar.

Það væri mjög gott að vera með hraðamæli þegar maður er á racernum (sérstaklega þegar maður er að hjóla í hóp og þarf að vera fremstur) en ég sé ekki fyrir mér að ég tími að kaupa mér Garmin GPS tölvu á næstunni. Ef þetta á eftir að virka eins og blásýra á kanínu þá er aldrei að vita nema maður kaupi bara aðra á racerinn.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap