Hjólað í blíðunni

Það sést vel á myndinni hversu aðframkominn af sól ég er. Myndin er tekin við Grundarkirkju.
Skellti mér með HFA að hjóla í morgun. Ég var ekki alveg viss hvernig skrokkurinn myndi bregðast við þessu eftir gærdaginn. Í gær rúllaði ég 20 km og var aðeins orðinn þreyttur í bakinu þegar ég kom heim. En þessar áhyggjur voru óþarfar og ferðin í gær virðist bara hafa verið fín upphitun. Í dag fór ég rúmlega 47 km og fann ekki mikið fyrir því. Það munar kannski um það að hópurinn stoppar alltaf öðru hvoru til að þétta raðirnar og maður getur aðeins rétt úr sér. Já og svo erum við náttúrulega líka að "drafta", þ.e. að hjóla í röð og þá nýtur maður góðst af því að skiptast á að kljúfa vindinn.

Á morgun ætla ég samt að hvíla hjólið og kíkja í Crossfit því æfing morgundagsins er geggjuð. Góð upphitun, svo smá styrkur og svo þessi hér:

Helen
3 Umferðir
400 metra hlaup
21 Ketilbjöllusveifla 24/16 kg
12 Upphífingar

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap