Það sem börnin sögðu
Ég er farinn að sjá eftir að hafa ekki verið duglegri við að skrifa niður gullkorn sem falla af vörum barnanna minna í gegnum tíðina. Brynleifur kom með eitt í kvöld. Dagbjört Lóa tók reyndar þátt í samtalinu og því ætla ég að skrifa aðdragandann líka.
Dagbjört Lóa: Pabbi, hvað er það sem þú mátt stundum ekki borða (blessað barnið að orðið ruglað á þessum ketó-tilraunum).
Pabbi: Stundum borða ég ekki nammi
Dabjört Lóa: Já nammi er óhollt.
Pabbi: Og svo vitið þið að ég drekk aldrei brennivín.
Brynleifur: Já það er eins gott að þú drekkir ekki brennivín því annars værir þú alltaf að lúskra á okkur!

Ummæli