Skítaveður

Það brast skyndilega á með vetri aftur. Kannski ekkert sem maður þarf að furða sig á í mars en ég er ekki alveg í stuði fyrir þetta. Miðað við spárnar slapp þetta reyndar furðu vel. Swiftinn stóð sig eins og hetja í allan dag og kom mér á milli staða. En ég var búinn að ætla mér austur í sveit með börnin og varð að hætta við það. Við förum kannski af stað í fyrramálið.

Vaknaði kl. 05.45 í morgun og fór í ræktina. Fór svo heim og fékk mér egg, avocato, reykt hrefnukjöt með piparsósu, feita pylsu og mygluost. Fór svo í heitt bað- ekki slæm byrjun á degi það. Hitti Þórð í hádeginu í bænum og við átum steik og bernaise. Kláraði svo að vinna og horfði svo á fótbolta með Þórði og við átum salat. Fullkomin næring í dag.

Er að spá í að fara að leggjast upp í rúm og blaða í sálfræðibókinni sem ég er að lesa. Það gengur nú ekkert hratt að spóla sig í gegnum hana en mér finnst hún samt skemmtileg. Til hliðar hef ég svo verið að hlusta á Konan í dalnum eftir Guðmund Hagalín, bók um ævi Mónikku á Merkigili. Merkileg kona en bókin ber þess merki að hafa verið skrifuð fyrir sextíu árum og er s.s. ekkert að ríghalda.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði