Góður og erilsamur dagur
Ég kann vel við svona daga. Var vaknaður fyrir 07.00 í morgun og byrjaði daginn á kaffi og fréttum (sem reyndar voru mjög sorglegar). Síðan kom ég börnunum í skóla og leikskóla og hélt mína leið í vinnuna. Skemmtilegt spjall og létt yfir fólki (þrátt fyrir tíðindin), hollur og góður hádegismatur og svo fundur sem kom hlutunum aftur á hreyfingu eftir smá ládeyðu.
Eftir vinnu náði ég í Dagbjörtu í leikskólann og við hittum Brynleif heima. Drengurinn fór að stauta, ég skaust í búðina og tók þau svo með mér í ræktina. Þaðan fórum við í sund og svo heim þar sem ég gaf þeim að éta. Steikti mér síðan kjöt og grænmeti og leyfði þeim að horfa í hálftíma. Gekk frá, setti í vél og nú er klukkan orðin 22.00 og ég rétt að setjast niður. Næst á dagskrá bóklestur og zzzzzzz........

Ummæli