Fritz Perls

Fritz Perls

Maður hét Fritz Perls og var faðir skynheildarsálfræði. Hann tók þessa sálfræðistefnu saman í stutta bæn:

Ég geri mitt og þú gerir þitt. Ég er ekki í þessum heimi til að lifa eins og þú vilt og þú ert ekki í þessum heimi til að lifa eins og ég vil. Þú ert þú og ég er ég og náum við saman er það fallegt. Ef ekki þá er ekkert við því að gera.

Að lesa ágrip af skynheildarstefnunni minnir um margt á ýmislegt sem maður hefur rekist á í sjálfshjálparbókum tengdri núvitund. Mikið fjallað um að skynja og skoða tilfinningar. Mér finnst þessi "bæn" alveg frábær.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap