Andleg dýfa
Ég datt í einhvern gamalkunnan gír núna rétt fyrir helgi. Það væri vel í lagt að segja að það hafi skollið á svartnætti, það bara rökkvaði aðeins. Sársaukakvikan lét eitthvað á sér kræla og ég fór að velta mér upp úr einhverju gömlu og vorkenna mér. Búa til sögur í hausnum og allt sem því fylgir.
Ég hef því verið að reyna að skoða þessar tilfinningar og reyna að átta mig á því hvað það er sem kveikir þær. Ég held ég átti mig á því að einhverju leiti, en vil ekki fara dýpra í það hér. En aðal málið er að átta sig á því að þetta er allt eðlilegt- partur af ferlinu. Þessum vondu stundum fækkar.
Annars fékk ég skemmtilegan pakka frá þýskalandi í morgun; hnakkur, afturljós og pedalar. Nú eru bara 9 dagar í hjólið og ég farinn að verða annsi spenntur. Vona bara að það fari að hlána meira svo maður geti tekið fákinn til kostanna þegar hann kemur.

Ummæli