Testosterone


Jæja nú er helgin að baki og ég kom afskaplega vel út úr henni. Að komast heim í Brekku og vera einn með hundunum og kindunum reyndist vera hin mesta hugleiðsla- og slökun. Ég hef kannski ekki alltaf kunnað að meta bústörfin nægilega vel, en núna var þetta frábær jarðtengin. Fara í húsin tvisvar á sólahring, moka sig í hænukofann, svitna og anda að sér fjárahúsapestinni; I love it! Þess á milli las maður og skrifaði, drakk kaffi og horfði út á vatn. Og ég var að fíla það í botn að vera einn.

Þórður kom svo á laugardagskvöldið og kláraði helgina með mér og það var líka ágætt að fá smá félagsskap í lokin. Er ekki allskonar alltaf best? Hann kom að sjálfsögðu líka sterkur inn í Keto-ið og við átum reykta nautatungu með rjómasveppasósu, súrum gúrkum og sinnepi. Það var ekki slæmt. Svo átum við á Salatsjoppunni í gærkvöldi, þannig mataræðið hefur verið fínt og mér líður vel af því. Var reyndar svo svangur þegar ég kom heim í gærkvöldi að ég át kaldan kjúkling, smá hárkarl, lýsi og magnesíum. Hljómar þetta ekki eins og eitthvað sem Steinríkur myndi fá sér áður en hann færi að lemja einhverja Pírata?

Í lokin ætla ég að skrifa smá pistil á vísindalegum nótum en nenni ekki að birta heimildir (takið þessu því með fyrirvara). Samspil testósteróns og fitusöfnunar er nokkuð flókið en kemur oft upp í umræðunni um líkamsrækt og næringu (sértaklega Ketó). Ef við gefum okkur það að það sé eftirsóknarvert/jákvætt fyrir karlmenn að viðhalda testosterone magni í líkamanum (fólk getur kynnst sér afhverju), þá eru hér 5 atriði sem minnka testosterone á kostnað estrogens:


  1. Hreyfingarleysi
  2. Svefnleysi
  3. Áfengisdrykkja
  4. Ekki næg fita í fæðu (ein- og fjölómettuð)
  5. Stress
Þegar ég les yfir þetta kemst ég að því að ég hef staðið mig afskaplega vel upp á síðkastið. Ég hreyfi mig mikið og sef yfirleitt vel. Áfengi hef ég ekki drukkið í meira en 12 ár og ég borða vel af fitu á keto-inu. Skilnaðurinn hefur reyndar tekið sinn toll þegar kemur að stressinu. Þegar ég hef verið í niðursveiflum hefur stundum hlaupið í mig vöðvabólga sem ég vil meina að sé afleiðing af stressi. En það horfir nú allt til betri vegar.

Jákvæðni dagsins er því að frábær helgi sé að baki og ég hlakka til næstu!


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap