Meira um skuggann


Ég minntist aðeins á Jung hérna á blogginu í gær. Hver elskar hann ekki? Ég ætla hér aðeins að birta meiri hugleiðingar honum tengdum.

Jung hafði mikinn áhuga á “skugganum” - formum hans og innihaldi - og skoðaði hann gjarnan sem “það sem manneskjan vill ekki vera”. Hann sá greinilega að yfirsjón, afneitun eða það að vilja ekki takast á við skuggaþætti (shadow elements) er oft rót vandamála milli einstaklinga, hópa eða hreyfinga; og er gjarnan það sem espar upp fordóma milli minnihlutahópa eða landa og getur hleypt af stað allt frá félagslegum þrætum og upp í meiriháttar stríð (www.thesap.org.uk).

En hversvegna hefur þetta heillað mig svona mikið upp á síðkastið? Jú með því að reyna að skoða ómeðvitaða hluti í eigin fari (skuggann) hef ég komist nær því að skilja afhverju ég bregst illa við vissum aðstæðum (sem kveikja kannski reiði og vanlíðan). Einnig hefur það gefið mér dýpri skilning á viðbrögðum annara og þolinmæði við að takast á við erfiða og oft ómeðvitaða hegðun.  En nú langar mig að koma með dæmi (sem gæti reyndar vel átt við sjálfan mig) til að skýra þetta betur út:

Þannig gæti einhver ekki verið fær um að gera greinarmun á ákveðni og eigingirni og látið alla ýta sér til og frá allt sitt líf. Jafnvel látið traðka á sér. Þetta getur orsakað að gremja fer að krauma undir niðri sem svo skilar sér að lokum  í stöðugri sektarkennd. Í þessu dæmi eru tilburðir einstaklingsins til að sína skörungsskap og gremja, bæði hlutar af skugganum. Greining gæti því breytt gildismati einstaklingsins og komið honum í betra samband við tilfinningar sínar og þarfir, og þannig losað hann bæði við gremjuna og sektarkenndina.

Þarna getur góður sálgreinir eða sálfræðingur leitt fólk í ferðalag um undirdjúp sálarinnar og jafnvel náð að að lýsa upp einhverja skuggafleti sem geta varpað ljósi á andlega kvilla. Þetta er nefnilega oft alls ekki rökrétt og mjög erfitt fyrir fólk að átta sig á þessu sjálft. Ég held að það geti verið ótrúlega gaman að vera sálgreinir eða sálfræðingur. Leynilögregla hugans. Ég myndi læra þetta ef ég væri ungur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap