Bóklestur
Ég er búinn að vera býsna duglegur að lesa upp á síðkastið. Segja má að lestrartörnin hafi hafist rétt fyrir jólin og standi en yfir. Ég fer reyndar ekki hratt yfir þegar ég les en aðal málið er að nuddast í þessu og gefa símanum frí þegar maður leggst upp í rúm. Þá kemst maður alltaf í gegnum eitthvað af bókum. Margir hafa verið að setja sér einhver markmið í bóklestri fyrir árið, en ég hef nú svo sem ekki hugsað mér það. Ég ætla samt að reyna að halda áfram á sömu braut og vera duglegur að lesa.
Þó ég ætli nú ekki að gerast einhver bókmenntagagnrýnandi langar mig til að hlaupa örstutt yfir hvað ég er búinn að lesa og hvernig mér fundust þær bækur.
Stormfuglar - Einar Kárason
Frábær bók sem ríghélt manni frá upphafi til enda. Bókin er stutt, hnitmiðuð og engu orði er ofaukið. Meitlaður texti með löngum setningum sem minna á öldur og gefa bókinni líf.
60 kíló af sólskini - Hallgrímur Helgason
Mikið listaverk sem minnir mann oft nokkuð á Laxness, og þá einna helst Sölku Völku og Sjálfstætt fólk. Hallgrímur hefur stundum verið gagnrýndur fyrir of mikið málskrúð, en í þessari bók finnst mér hann ekki fara yfir strikið.
Kambsmálið - Jón Hjartason
Þessi bók er s.s. ekkert meistaralega skrifuð, enda skrifuð sem sagnfræðirit. Bókin, sem er stutt og nokkuð fljótlesin, fjallar um alveg ótrúlega atburði sem áttu sér stað við Veiðileysufjörð á Ströndum árið 1953, þar sem leysa átti upp fjölskyldu. Heimilisfaðirinn var nýfallinn frá og móðir barnanna lá fársjúk á Vífilstöðum. Mjög fróðleg lesning.
Hið heilaga orð - Sigríður G. Hagalín
Bókin er að vissu leiti byggð upp eins og spennusaga þar sem ein söguhetjan hverfur í upphafi bókar. En bókin er samt mun dýpri en það og fjallar um ástríður, lestur, fjölskyldubasl, leitina að sjálfum sér og margt fleira. Bókin er spennandi á köflum og hélt mér ágætlega. Það sem mér finnst finnst svalast í bókinni eru pælingar höfundar um hið ritaða mál, stafræna byltingu og áhrifin ólíkra miðla á mannshugann. Mjög góð bók.
Sorgarmarsinn - Gyrðir Elíasson
Ég á undarlegt samband við Gyrði sem ég reyni kannski að útskýra betur seinna. Ég elska næstum allt sem hann gerir og mér finnst þessi bók vera mjög góð. Ég get samt ímyndað mér að margir fíli þetta alls ekki.
Náðarstund - Hannah Kent
Er reyndar ekki alveg búinn með þessa en er mjög ánægður með það sem komið er. Mér finnst með ólíkindum hvernig ungur útlendingur getur dregið upp svona trúverðuga mynd af Íslandi fyrri tíma. Stílinn er líka mjög góður yfirleitt og Jón St. Kristjánsson hefur gert mjög vel í að þýða verkið. Ég uppfæri þetta þegar ég klára.
-----
Ég held að þetta sé upptalið í bili þó mér finnist ég vera að gleyma einhverju. Ég hef því verið mjög ánægður með allar þessar bækur og það besta er að ég er með á listanum fullt af bókum sem ég hlakka mikið til að lesa, t.d. Pyrrhos og Kíneas, Ungfrú Ísland, Listamannalaun og Lifandilífslækur.
Hef ekki svindlað á ketóinu ennþá en er kannski að éta óþarflega mikið. Líður vel. Í dag er ég m.a. búinn að éta þorskhrogn, svínaskanka, beikon, egg, avocato, mygluost, salthnetur, súrkál, súra gúrku.... kóngafæði frá a-ö.
Ummæli