Æfing
Brasið í sambandi við húsnæðismálin heldur áfram. Ég fékk samþykkt tilboð í blokkaríbúð hérna í nágrenninu sem er 100 fermetrar með þremur svefnherbergjum. Eignin er í góðu standi, vel skipulögð og börnin fá sér herbergi ef þetta gengur eftir. Staðsetningin er náttúrulega frábær og við kæmumst áfram af án bíls. Ég sé fyrir mér að við gætum búið þarna til frambúðar. En þetta hangir samt allt á því að ég fái greiðslumat og að við náum að selja Dalsgerðið.
Guðrún er í Reykjavík með börnin og því má segja að ég sé að fá smá æfingu í að vera aftur einn með sjálfum mér. Þetta er tilfinning sem ég þekki vel frá fyrri tíð og þó henni fylgi ákveðið frelsi, þá er þetta óneitanlega svolítið einmannalegt. Maður veit ekki alveg hvað maður á af sér að gera og svo bætist ofaná þetta söknuður eftir börnunum. Ég vil ekki gera of mikið úr þessu en ég kunni fjölskyldulífinu bara svo ljómandi vel.
En þessar tilfinningar allar leiddu hugann að pistli sem ég skrifaði fyrir ári síðan þegar ég var að velta fyrir mér núvitund. Þar vitnaði ég í Eckhart Tolle:

Ef þú getur ekki verið rór þegar þú ert einn með sjálfum þér, þá muntu leita í sambönd við aðra til að breiða yfir óróleikann. En þá geturðu líka bókað að hann mun koma aftur í ljós í samböndum - og þá muntu líklega gera hina ábyrga fyrir því. Það eina sem þú þarft í rauninni að gera er að sætta þig að fullu og öllu við andartakið, þetta andartak. Ró í því er hið sama og innri ró. En þarftu að vera í sambandi við sjálfan þig? Af hverju geturðu ekki bara verið þú sálfur? Þegar þú ert í sambandi við sjálfan þig, þá hefurðu skipt þér í tvennt: "þig" og "þig sjálfan". Þessi tvískipting - sem er alger óþarfi og ekki til annars en að flækja málin - er meginástæða allra vandkvæða þinna. Meðvitaður eða uppljómaður ertu þú sjálfur - "þú" og "þú sálfur" renna saman. Þá dæmirðu ekki sjálfan þig, þá vorkennirðu ekki sjálfum þér þá ertu ekki hreykinn af sjálfum þér, þá elskarðu ekki sjálfan þig, þá hatarðu ekki sjálfan þig ... Þá er klofninguruinn, sem hugurinn skapar, elur og viðheldur, úr sögunni. Þá er ekki lengur neitt "sjálf" sem þú þarft að vernda, verja eða næra. Og þegar þú hefur einu sinni gefið sambandið við sjálfan þig upp á bátinn, þá verða öll önnur sambönd að raunverulegum ástarsamböndum.Ég ætla að reyna að hafa þetta í huga núna og njóta þess bara að vera einn með sjálfum mér. Nýta þessa erfiðleika mína síðustu misseri til þess að þroskast og koma sterkari og heilli maður út í restina af lífinu. Ég á það skilið.
Ummæli