Betri dagar

Eftir frekar slæma byrjun á vikunni hefur þetta nú heldur verið að þokast uppá við. Ætli það muni ekki bara um það að vera laus við bein samskipti við Guðrúnu. Ég meina þetta ekkert illa, en þegar eru mikil særindi og undirliggjandi reiði, þá virðist það ýfast upp þegar við erum bæði inn á heimilinu. Núna er maður aðeins búinn að gleyma þessu öllu og bara nýtur þess að vera með börnunum.

Í gær skelltum við okkur í ræktina eftir skóla og leikskóla. Síðan fórum við heim að læra og næra okkur. Þá var nú eiginlega bara kominn háttatími. Í dag var svo handboltaveisla hjá okkur þar sem við átum við sjónvarpið og fengum okkur svo popp og ropvatn. Brynleifur þurfti að sjálfsögðu líka að læra. Hann er eins og ég var, finnst erfitt að sitja yfir stautinu. En þess vegna veit ég líka sjálfur hversu mikilvægt er að halda að honum bókunum svo hann lendi ekki vandræðum seinna meir. Ég sé ekki eftir þeim tíma sem ég sit með honum.

Annars fékk ég samþykkt bráðabyrðagreiðslumat fyrir Tjarnarlund 6 í dag. Það er reyndar nokkuð mörg "ef" í því. Það stærsta að sjálfsögðu hvort við náum að selja Dalsgerðið. Ef það næst fyrir 8. febrúar ætti þetta að geta gengið, jafnvel þó það þyrfti smá fiff og fíneseringar. Ef ekki verður af því þá er ég er reyndar ennþá að skoða hvort ég geti tekið yfir Dalsgerðið og leigt út efri hæðina.

Viðskiptamódelið mitt gengur mjög vel upp til lengri tíma litið, en mig vantar samt pening til að borga Guðrúnu út, og eitthvað smotterí í breytingar. Síðan kæmu sennilega 2-3 mögur ár en eftir það ætti ég að hafa það gott. Sjáum hvað setur....

Jákvæðni #8 Ef ég er að finna smjörþefinn af því sem koma skal (andlega), þá verður sko alveg í lagi með mig.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap