Rjúpa og rauður bíll.
Að sjálfsögðu skellti maður í eina rándýra sjálfu eins og sannur áhrifavaldur |
Fór í rjúpu um helgina og gekk bara helvíti vel. Föstudagurinn gaf ágætlega en ég tapaði því miður 2-3 fuglum, það finnst mér alltaf afskaplega sárt. Á laugardagsmorgun fór svo allt á fullt um kl. 09.00 og mikið líf í móunum og maður komst í góð færi. Var kominn með 5 á flugi í 5 skotum og svo 6 í 7 skotum. Ég ákvað svo að hætta kl. 11.15 ef ég ætti að geta réttlætt það fyrir mér að fara aftur á þessu tímabili. Síðan ætlaði ég ekkert að fara á sunnudaginn en tengdapabbi (sem er svo mikill verkmaður) rak mig á dyr og ég labbaði smá hring og fékk aðeins meira blóð á puttana.
Eftir tæplega eitt og hálft ár af bílleysi erum við aftir komin á bíl. Tókum Suzuki Swift 4x4 á leigu í 6 mánuði hjá Sverri frænda á AVIS. Leigan er 45 þúsund á mánuði og allt innifalið. Ég held að það sé ekki hægt að segja annað en að þetta sé fínn díll þó varla sé pláss fyrir hamstur afturí. Við verðum reyndar að passa okkur á að fara ekki yfir 6000 km en þar sem við erum svo vön að labba út um allt ætti það að sleppa (svo kemur hjólið í mars). Við gerum þetta hvort sem er aðalega til að komast í fjallið og verðum því að fara að skoða skíðaboga.
Annars hefur mér orðið starsýnt út um gluggan í vinnunni í dag. Sólin hefur baðað skjannahvít Möðruvallarfjöllin gulum bjarma og skuggarnir í giljunum alveg geggjaðir. Ég tók mynd og hugsa að ég rífi upp pensil í kvöld. Svo geng ég með hugmynd af 10 mynda seríu sem mig langar að sýna í Mývatnssveit. Það verður sölusýning.
Ummæli