Jákvæðni
Um daginn var mér ráðlagt að halda jákvæðnidagbók. Enda hvern dag á því að skrifa eitthvað jákvætt sem maður náði fram, eða upplifði þann daginn. Þetta á víst að hjálpa manni að örva nýtt hugsanamynstur og búa til nýjar taugabrautir og tengingar jákvæðni í heilanum- ef svo mætti að orði komast. Kraftur jákvæðninnar á að umbreyta lífi manns til betri vegar.
Hafið það gott.
Þetta datt fljótt upp fyrir hjá mér og ég gaf þessu eiginlega ekki séns og veit eiginlega ekki hvort þetta getur virkað. Það auðveldar þetta s.s. ekkert að vera alls ekki viss um að maður eigi að lifa lífinu í einhverri endalausri hamingjun (hvað er líka hamingja?). Lífið er erfitt og sársaukafullt á köflum og kannski á það bara að vera þannig. En það er kannski ágætt að fara einhvern milliveg og vera ekki sítuðandi og sjá ekki djöfla í hverju horni.
En annað sem ég gaf of fljótt upp á bátinn er hugleiðsla. Ég fór að hugleiða um daginn og það virkilega hafði góð áhrif á mig. Ég ætla að byrja aftur. Kannski skrifa ég það í jákvæðnibókina í kvöld að ég hafi byrjað að hugleiða í dag. Hver veit?
Þar sem þetta er jákvæðnipistill ætla ég að enda hann á jákvæðum nótum (hvað annað) með að vitna í minn besta vin Slavoj Zizek:
"What makes me depressed, seeing stupid people happy"
Hafið það gott.
Ummæli