Eftir hádegismat 28. mars 2017
Stundum líður mér ekki nægilega vel í hasunum. Það væri gott að geta pantað tíma hjá heimspekingi. Afhverju ætli sjúkratryggingar taki ekki þátt í að borga heimspekikostnað? Heimpekilínan 905 3000... væri hægt að finna meiri merkingu í einni viðskiptahugmynd? "Sæll Davíð, þetta er Plato."
---
Þegar ég geng til vinnu í gegnum Klettaborgirnar ræði ég stundum við Pál Skúlason. "Hvernig er það Páll, er hægt að vinna við eitthvað sem hefur enga merkingu fyrir manni?" "Andlegt frelsi og rannsóknir Páll.... .. sköpun og vísindi.... hvar stöndum við í dag?" "Hegel vildi meina að sannleikurinn um okkur sjálf birtist tærast í listinni. Hvað um í pálmolíurannsóknum?"
Svona held ég áfram en fæ engin svör.......
Hann er samt nálægur. Páll lifir t.d. í Kalbaki sem situr pattaralegur þarna hinummegin við fjörðinn baðaður bleiku ljósi. Hann er líka í Öskju og Dyngjufjöllum. Hann er í náttúrunni. Hann lifir í viðfangsefnum sínum. Sjálfsagt í garðslöngunni líka.

Ummæli