Gæsaveiði

Við félagarnir fórum í okkar árlegu gæsaveiðiferð um helgina. Í þetta skipti fórum við á suð-austur hornið. Vorum með kornakra en það var engin gæs komin á svæðið. Við fengum samt smá flug fyrsta morgunin- í túni sem okkur var úthlutað. Við náðum að reyta niður nokkra fugla. Eftir það gerðist ekkert og við þurftum að einbeita okkur að ofsaáti og heitapottsferðum. Mikið á okkur lagt.

Þetta er ástæðan fyrir því að ég hef ekki verið að setja inn myndir síðustu daga. Það breytist í kvöld. Þessa mynd sem ég læt fylgja með núna tók Þolli. Mér fannst hún eitthvað svo lýsandi fyrir góðan gæsamorgun.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap