Skapvonska

Kom seint heim í kvöld og það lá ekki nægilega vel á mér. Fór inn í vinnuherbergi og ætlaði að gleyma mér yfir að mála. Ákvað að hvíla mig á bátum og húsum og mála fjallamynd. Það er ekki hægt að vera illa upp lagður við að mála. Ég fór að flýta mér og hrúga drullu á pappírinn. Endaði með því að snúa honum við. Reif svo draslið, henti í ruslið og fór í fýlu.

Síðan verður maður fúll við sjálfan sig að láta eins og smábarn og ætlar að mála meira. Þá er mál að stoppa. Skissaði slatta í Skagafirði í dag og málaði með litla pocket settinu sem ég keypti í SF. Það er alltaf svolítið skemmtilegt. Hér kemur einn lítill bútur úr blaðsíðu.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap