Túr í vori


Tók smá skrens á hjólinu í dag. Reyndar líka í gær og líka í fyrradag. Í gær tók ég smá off-road, upp hjá flugvelli og elti svo hæstu hæðir að þorpinu. Hjólaði Hlíðina yfir þorpinu, niður á golfvöll og svo heim.

Í dag fór ég upp á Hverfjall. Þurfti reyndar að teyma hjólið upp mestalla leiðina en hjólaði svo hringinn. Steig aðeins af hjólinu á hæsta punkti og horfði til suðurs. Villingafjallið er alltaf svo virðulegt. Síðan lét maður sig vaða niður alla leið í einum rykk. Það tók ekki langan tíma.

Snilld!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap