Perur
Perur - Marek Yanai - Vatnslitir á pappír |
Það er svo skrítið með það að það er einhvernveginn allt í lagi að karlar máli blóm og ávexti. Ef konur gera það er það aftur orðið eitthvað væmið og ómerkilegt. Ég hef heyrt kvenkyns myndlistarmenn tala um þetta. Fáránlegt, ekki satt?
Það hefði kannski verið viðeigandi að birta mynd eftir konu víst ég er að þusa þetta. En þessi mynd, sem mér finnst alltaf ótrúlega flott, er eftir Marek Yanai. Hann er held ég Ísraeli. Það er hægt að sjá myndband á youtube þar sem hann málar þessa mynd.
Ummæli