Gamla Stokkseyri - Steingrímur St. Th. Sigurðsson, 1983. Olía á striga

Keypti mér málverk á vefuppboði í síðasta mánuði. Þetta byrjaði í hálfkæringi en ég fór svo alla leið á endanum og beit af mér alla keppinauta. Verkið er eftir Steingrím St. Th. Sigurðsson sem lést árið 2000, þá 75 ára gamall slétt.

Steingrímur þessi var víst nokkuð litríkur karakter og bóhem. Fæddur og uppalinn á Akureyri en hafði blendnar tilfinningar til þess bæjarfélags alla tíð. Það er kannski ekki skrítið þar sem hann ku hafa verið sterk gáfaður.  Í minningargrein las ég að hann hafði verið leikfélagi Siglaugs afa hennar Guðrúnar sem barn.

Hann þvældist hingað í Mývatnssveit eitthvert sumarið, rétt fyrir andlátið og sat á Gamla bænum í einhverja daga og drakk og málaði starfsfólkið. Því miður held ég að starfsfólkið hafi ekki haldið upp á teikningarnar.

Ég er búinn að lesa allt sem ég finn um hann á netinu sem gerir það ennþá ánægjulegra að eiga þessa fallegu olíumynd. Ég er alltaf veikur fyrir hnausþykkum olíustrokum að hætti Gogh. Litirnir í þessari eru líka meistaralegir. Ofsafengið brimrótið í baksýn og bleikur skýjaroðinn kórana þessa mynd.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap