Brynjuís

Fór í Brynju áðan að kaupa staðgóðan eftirmat fyrir mig og Guðrúnu. Eitthvað sem kemur okkur í gott form fyrir keisaraskurðinn í fyrramálið. Skrítið að eiga vona á erfingja og vita ca. nákvæmlega hvenær hann birtist. Ég veit hann verður fullkominn eins og Elvis.

Þar sem ég stóð í Brynju og var að góna á gólfið gerði ég merkilega uppgötvun. Af 12 viðskiptavinum voru 7 í Nike Free skóm. Ég beið eftir að þeir fengju afhent box með graskögglum og myndu svo hlaupa jarmandi til fjalla.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði