Bréfaskriftir
Við erum búin að vera á Akureyri síðustu daga að bíða eftir nýja fjölskyldumeðlimnum. "Fyrirsætufylgjan" gerir það að verkum að við megum ekki víkja langt frá sjúkrahúsi. Við höfum verið í dásamlegri íbúð sem Rauði krossinn á og haft það gott.
Í nótt vaknaði Guðrún upp við smá blæðingu og því þurftum við að færa okkur yfir á sjúkrahúsið. Þar fengum við stofu þar sem er pláss fyrir mig líka. Við höfum það gott og búið er að flýta keisaranum til föstudagsins 17. apríl. Við höldum að þetta sé strákur en vitum svo sem ekkert.
Þó við séum viss um að þetta endi allt vel höfum við verið pínu stressuð og eirðarlaus. Ekkert náð að lesa en spjallað þeim mun meira. Við erum líka að útbúa pakka til vina á erlendri grundu og skrifa bréf. Ég teiknaði aðeins á hausinn. Kannski maður teikni eitthvað meira en ég þori nú ekki að fara að vatnslita hérna.
Ummæli